Brew.is
Búnaður

Cornelius kútar 101

Yfirlit yfir hvað Cornelius kútar eru, hvernig þeir eru notaðir í heimabruggun og hvaða búnað þarf.

Cornelius kútar eru kútar sem Pepsi og Coke notuðu á árum áður fyrir gosdrykkjasýróp. Bruggarar tóku þá upp vegna þess að þeir voru algengir, auðvelt að þrífa og ódýrir í notkun. Í dag er erfitt að finna góða notaða kúta og flestir kaupa þá nýja.

Stærðir og gerðir

Algengustu stærðirnar eru 3, 5 og 10 gallon (u.þ.b. 11, 19 og 38 lítrar). 5 gallona kútar eru lang algengastir og passa vel fyrir eina lögn. Kútarnir skiptast í tvær gerðir eftir tengjum: ball lock (pepsi) og pin lock (coke). Munurinn er helst í tengjunum sjálfum; ball lock tengi er hægt að setja óvart á rangan póst en pin lock ekki. Einnig eru pin lock kútar ögn feitari og lægri en ball lock kútar. Ég sel aðeins ball lock kúta, en notaðir pin lock kútar detta oft inn á notaðan markað.

Viðhald og þrif

Hugsaðu um kútinn eins og eina stóra flösku: hreinlæti er lykilatriði. Sótthreinsaðu áður en bjór er settur á kút, t.d. með star san. Taktu kútinn öðru hvoru í sundur til að þrífa rör og tengi sem safna bjórsteini. Ég mæli með PBW eða Chemipro Wash. Láttu ekki óhreinindi standa lengi í kút – það gerir þrifin erfiðari.

Geymsla

Bjór geymist vel á kúti. Ef hreinlæti er í lagi þá endist bjórinn jafn lengi eða lengur á kúti en í flöskum. Eftir að kútur tæmist er best að þrífa hann strax og geyma hann hreinan til að spara þér fyrirhöfn síðar. Ef þú getur ekki þrifið hann strax, ekki taka þrýsting af honum og opna hann fyrr en þú getur þrifið hann - það er mikið erfiðara að þrífa þornaðan bjór.

Nauðsynlegur búnaður

  • Kolsýruhylki / gaskútur: fyrir kolsýrun og til að ýta bjórnum út.
  • Þrýstijafnari: til að lækka þrýstinginn úr gaskútinum niður í öruggt gildi.
  • Hraðtengi/kúplingar: tengja slöngur við gas- og bjórpósta.
  • Slöngur: leiða gas í kút og bjór úr honum.
  • Kranar: til að skenkja. Mismunandi gerðir eftir hentugleika.
  • Ísskápur eða kegerator: til að kæla kúta og tryggja stöðuga kolsýru.

Að lokum

Vonandi hjálpar þetta þér að átta þig á því hvað felst í því að nota Cornelius kúta fyrir bjórinn þinn. Ef þú hefur spurningar er tilvalið að hafa samband.