Léleg nýtni í bruggun, ástæður og ráð
Greining á algengum orsökum lágs OG og hvernig má bæta nýtnina í meskingu.
Fólk hefur oft samband við mig vegna vandræða við lélega nýtnu, þ.e.a.s. þegar fólk fær lægra OG en búist var við samkvæmt uppskrift. Það geta verið margar ástæður fyrir því, en förum yfir þær sem mér dettur í hug núna.
Korn ekki hrært vel
Þegar maður blandar korninu í vatnið er mjög mikilvægt að hræra vel og vandlega í því. Við það að hella korninu í vatnið myndast kögglar sem þarf að brjóta upp; annars meskirðu aðeins utan á þeim og kornið innst sleppur. Hrærið einnig til að jafna hitastigið í grautnum. Stál skeið.
Hitastig í meskingu og dough in
Hitastig í meskingu stýrir hlutfalli gerjanlegra sykra. Ef of heitt er í byrjun getur ensím virkni dregist saman og nýtnin líður fyrir. Stefndu á að vera í kringum 65–69 °C eftir að hrært er. Hærra hitastig gefur hærra FG, lægra hitastig lægra FG. Ef hitinn fellur um 1–2 gráður eða meira í ferlinu er gott að skoða einangrun meskílátsins eða hitastýringu.
Lengd meskingar
Sextíu mínútur duga yfirleitt, en ef nýtnin hangir á endanum getur verið gagnlegt að lengja í 90 mínútur, sérstaklega þegar meskjað er á kaldara hitastigi (64–66 °C) eða fyrir bjóra með hátt OG (yfir 1.070).
Mashout
Mashout, eða að hækka hitann í 76 °C í lok meskingar, hjálpar til við að ná öllu úr korninu. Ég mæli með að geyma um 5 lítra af vatni í upphafi og bæta þeim sjóðandi heitum við í lokin til að ná þessum hitastigum auðveldlega.
Með sjálfvirkjum tækjum eins og BrewZilla er einfalt að bara hækka hitastigið í lok meskingar.
Mölun á korninu
Of gróf mölun dregur úr nýtninni. Korn sem er malað hjá mér ætti ekki að valda vandræðum; ég nota sama korn og kvörn í eigin bruggun á nokkurra vikna fresti og fæ 70–75 % nýtni.
Vatnsmagn
Ef þú endar með meiri virt en uppskriftin gerir ráð fyrir er virturinn þynnri og því lægra OG. Þú getur soðið lengur til að draga úr magni og "þykkja" virtinn, en með lengri suðu verður bjórinn örlítið dekkri. Passaðu einnig að sjóða humlana ekki lengur en uppskriftin segir til um.
Það er algengt að ég fái spurningu um af hverju bjórinn sé léttari en hann átti að vera, en svo kemur í ljós að viðkomandi endaði með t.d. 23 lítra af virti eftir suðu. Það hljómar ekki mikið að vera með 3 auka lítra, en það er í raun 15% meira magn af vatni og því verður gravity 15% lægra. Þannig að bjór sem á að vera 1.052 en er með 3 lítra auka af vatni er 1.044 og næstum 1% lægri í áfengismagni.
Hátt gravity
Stórir bjórar (OG > 1.070) bera með sér lægri nýtni. Bættu korni við eða notaðu extract til að mæta því. Því hærra sem OG er, því meira korn þarftu.
Skakkur sykurmælir
Sykurmælar eiga að sýna 1.000 í 20 °C vatni. Ef mælingin er annaðhvort hærri eða lægri þarftu að leiðrétta fyrir því. Gakktu úr skugga um að mælirinn sé heill og óskaddaður.
Það er þægilegt að nota refractometer í bruggferlinu til að fylgjast með sykurmagni í meskingu því refractometer er óháður hitastigi virtsins og því hægt að taka sýni í miðri meskingu og suðu.
Skakkur hitamælir
Prófaðu hitamæli í sjóðandi vatni (um 98 °C hér á landi) og í ísvatni (0 °C). Ef mælingarnar passa ekki er mælirinn skakkur og þarf að kalíbrera eða nota annan mæli.
Hitastig á virti þegar mælt er
Sykurmælar eru hannaðir fyrir ákveðið hitastig, oftast 20 °C. Heitari virtur lætur mælinn sýna minna en raunverulegt gildi. Munurinn getur verið allt að 4 punktar (0.004) við 35 °C, svo það borgar sig að láta sýnið kólna eða nota hitaleiðréttingu.
Eins og sjá má eru flest vandamál við nýtnina komin frá meskingunni. Það er því mikilvægt að vanda sig sérstaklega með öll hitastig í meskingu og gefa sér góðan tíma í hana. Vonandi hjálpar þetta einhverjum – endilega láttu mig vita ef þér dettur eitthvað fleira í hug.