Hvernig losna ég við botnfall í flöskunum?
Botnfallið í flöskunum er að mestu leyti ger. Þegar maður setur sykurinn í flöskurnar til að fá kolsýru í bjórinn, þá byrjar gerið á því að fjölga sér, étur svo sykurinn og býr til kolsýru og (örlítið) áfengi. Ef maður vill sleppa 100% við botnfall þá þarf maður að hafa leið til að kolsýra bjórinn áður en hann fer í flöskurnar, til dæmis í bjórkút og setja kolsýru af þrýstikút á bjórinn. Og nei, ég mæli ekki með því að setja bjórinn í sodastream tæki 🙂