Brew.is
Algengar spurningar

Kolsýrutafla í °C

Þrýstingur fyrir mismunandi kolsýrumagn í vökva (bjór)

Þessi tafla hjálpar þér að finna þann maintenance þrýsting sem þarf til að viðhalda ákveðinni kolsýru í bjórnum þínum. Hér getur þú lesið um leiðir til að kolsýra bjór í kútum

Finndu hitastigið sem bjórinn þinn er við (°C) og lestu af hvaða þrýsting (PSI) þarf til að ná tilteknum kolsýrumagni (vol CO₂). Taflan gerir ráð fyrir stöðugu hitastigi og jöfnu jafnvægi milli gass og bjórs.

Hitastig (°C)1.8 vol 2.0 vol 2.2 vol 2.4 vol 2.6 vol 2.8 vol 3.0 vol 3.5 vol 4.0 vol
-2.00.223.85.67.39.110.815.219.5
0.01.63.55.47.39.21112.917.622.2
2.02.95791113152025
4.04.36.58.610.812.915.117.222.527.7
6.05.8810.312.614.917.119.42530.6
8.07.29.61214.416.819.221.627.533.4
10.08.711.213.816.318.821.323.83036.2
12.010.212.915.518.220.823.526.132.639.1
14.011.814.617.320.122.925.628.435.242.1
16.013.416.319.222.12527.830.737.945
18.01518212427.130.133.140.648
20.016.619.822.926.129.232.335.543.351
22.018.321.624.828.131.434.637.94654.1

Viðmið fyrir mismunandi stíla

Kolsýrumagn er smekksatriði en þessi viðmið eru góð byrjun þegar stilla á þrýsting áður en bjórinn er settur á krana. Mæld í volumes (vol) af CO₂. Ef þú ert ekki viss, þá er gott að miða við ca 2.4vol.

BjórstíllMassi CO₂ (vol)
Breskt öl1.5 – 2.0
Porter og stout1.7 – 2.3
Belgískt öl1.9 – 2.4
Evrópskir lagerar2.2 – 2.7
Bandarískt öl og lagerar2.2 – 2.7
Lambic2.4 – 2.8
Ávaxtalambic3.0 – 4.5
Þýskur hveitibjór3.3 – 4.5

Hvernig er taflan notuð?

  • Mældu hitastigið á bjórnum í kútnum þínum og finndu nálæga línu í töflunni.
  • Veldu kolsýrumagn (vol CO₂) út frá stílnum sem þú ert að brugga.
  • Stilltu maintenance-þrýstinginn þinn á viðeigandi PSI gildi og leyfðu bjórnum að ná jafnvægi. Sjá meira hér
  • Athugaðu reglulega, sérstaklega fyrstu dagana, þar til kolsýran er á þeim punkti sem þér hentar.

Heimild: Weihenstephan carbonation formula