Brew.is
Útgáfa 7 · 18. desember 2024

Brew in a Bag (BIAB) leiðbeiningar

Leiðarvísir að einfaldri kornbruggun fyrir heimabruggarann. Skjalið byggir á reynslu Hrafnkels Freys Magnússonar og er hugsað sem upphafspunktur sem má síðan þróa áfram eftir þörfum.

Hrafnkell Freyr Magnússon
Brew.is
Hvað er BIAB?

Kornpokinn virkar eins og risastór te-poki. Kornið liggur í heitu vatni, er híft upp og virturinn (sykraði vökvinn) er síðan soðinn, kældur og gerjaður.

Skrefin virðast mörg á blaði en vinna í reynd er fyrst og fremst að halda hitastigi og fylgja tímastillingum.

Hvernig er bjór búinn til?

Í einföldu máli: vatn, korn, humlar og ger. Kornið liggur í vatni við stöðugt hitastig til að losa sykrur (mesking). Virturinn er soðinn með humlum sem gefa beiskju, bragð og ilm, síðan kældur og ger lagður í hann. Gerið umbreytir sykrum í áfengi og kolsýru og virturinn verður að bjór.

Það sem þú þarft
  • 30 lítra gerjunarfata með loki og vatnslás
  • 30 lítra suðupottur eða sambærileg tunna
  • Kornpoki (grisja) fyrir BIAB
  • Nákvæmur hitamælir
  • Sykurflotvog
  • Malað malt (u.þ.b. 5 kg), humlar og ger fyrir 20 lítra uppskrift

Miðað er við 20 lítra uppskrift með um 5 kg af malti. Allt hráefni og búnaður fæst í verslun Brew.is eða á vefnum.

Ferlið – stutta útgáfan

Hentar til að hafa við hendina á bruggdegi eftir að þú hefur lesið lengri lýsinguna.

Bruggdagur
  1. 1Hitaðu 27 lítra af vatni í um 72°C svo hitastigið falli niður í 66–67°C þegar kornið er komið í.
  2. 2Settu pokann í pottinn, helltu möluðu korni í og hrærðu þar til engir kekkir eru eftir.
  3. 3Haldið hitanum stöðugum í 60 mínútur – þetta er meskingin.
  4. 4Hækkaðu hitann í 75°C og haltu honum þar í 10 mínútur (mash-out).
  5. 5Hífðu pokann upp, leyfðu honum að leka og kreistu varlega ef þarf.
  6. 6Kveiktu á fullum hita og komdu virtinum upp að suðu.
  7. 7Sjóðið í 60 mínútur og bættu humlum við samkvæmt uppskrift.
  8. 8Kældu virtinn niður – annaðhvort með kælibúnaði eða yfir nótt.
Eftir bruggdag
  1. 9Helltu köldum virtinum (ca 20°C) í sótthreinsað gerjunarílát og stráðu gerinu yfir. Taktu sýni fyrir sykurmælingu.
  2. 10Leyfðu gerjun að klárast í að minnsta kosti 7 daga og ekki lengur en 30 daga í fötunni.
  3. 11Fleyttu bjórnum af botnfallinu yfir í aðra fötu, bættu sykri við (um 6.6 g/L) og tappaðu á hreinar flöskur.
  4. 12Geymdu flöskur við stofuhita. Eftir 7–10 daga er bjórinn tilbúinn í fyrstu bragðprufu en heldur áfram að þroskast í nokkrar vikur og jafnvel mánuði, eftir bjórtegund

Ferlið – lengri útgáfan

Ítarleg lýsing á meskingu, suðu, kælingu, gerjun og átöppun ásamt hreinlætisreglum.

Hreinlæti

Allt sem snertir bjórinn eftir suðu þarf að vera sótthreinsað. Notaðu OXI, PBW og Star San/SAN eftir þörfum.

  • Gott er að hafa gerjunarfötu með star san blönduðu vatni við hendina og leggja öll áhöld í þegar þau eru ekki í notkun.
  • PBW hreinsar en sótthreinsar ekki – skola þarf eftir notkun. Star San/Chemipro SAN og OXI þarf ekki að skola.
  • Hreinlæti kemur í veg fyrir óæskileg bragðefni, sprenging flaska og sóun á heilli lögn.
1. Mesking

Markmiðið er að draga sykrur úr maltinu. Haltu hitastigi á bilinu 65–69°C í 60–90 mínútur og hækkaðu síðan í 76°C í 10 mínútur.

  • Einangraðu pott eða fötu með svefnpoka eða teppi til að halda hitanum stöðugum.
  • Mældu hitann eftir 20 mínútur; leiðréttu ef hann hefur fallið meira en 1–2°C.
  • Gættu þess að pokinn liggi ekki beint á hitöldum þegar hitinn er hækkaður.
  • Meskihitastig fer eftir smekk og tegund á bjór - ef þú ert ekki viss þá er gott að miða við 67°C
2. Suða

Suðan dregur úr óæskilegum efnum og leyfir humlum að gefa beiskju, bragð og ilm. Venjuleg suða er 60 mínútur.

  • 60 mín humlar gefa beiskju, 20 mín gefa bragð og stuttar viðbætur (0-5 mín) gefa ilm.
  • Lok á ekki að vera á potti þegar soðið er.
  • Gættu þess að það sjóði ekki upp úr – minnkaðu hitann eða notaðu defoamer. Það sýður helst uppúr þegar suða kemur upp í byrjun eða þegar humlar eru settir í.
  • Notaðu Whirfloc eða fjörugrös síðustu 5–10 mínúturnar til að fá tærari bjór.
3. Kæling

Kældu virtinn í 20–25°C áður en ger er bætt út í. Hröð kæling minnkar beiskju og flýtir ferlinu. Bjórinn verður einnig tærari ef hann er kældur hratt.

  • Öl er venjulega gerjað við 18-22°C
  • Lager er gerjaður við 8-12°C
  • Hitastig í gerjun hefur mikil áhrif á loka bragð - lægra hitastig yfirleitt betra.

Kælispírall eða immersion-chiller er eitt það fyrsta sem margir bæta við búnaðinn eftir byrjendapakkann.

4. Gerjun

Bættu gerinu í virtinn í sótthreinsuðu gerjunaríláti með loftlás. Hristu virtinn til að gefa gerinu súrefni.

  • Hafðu hitastig í 18–20°C fyrir flesta bjóra. Lager þarf annað hitastig og þarfnast kælis.
  • Leyfðu aðalgerjun að ljúka (5–7 dagar) og gefðu síðan bjórnum nokkra daga í viðbót til að þroskast.
  • Ekki hafa bjór í gerjunarfötu lengur en 30 daga til að forðast óæskileg bragðefni.
5. Átöppun

Sótthreinsaðu flöskur og tappa með star san, chemipro san eða oxi. Notaðu sykursýróp til kolsýringar áður en bjórinn er settur á flöskur.

  • Til þess að kolsýra bjór í flöskum bætum við smávegis af sykri við virtinn fyrir átöppun. Gerið étur sykurinn og býr til kolsýru.
  • Mældu sykurmagn (miðið við ~6.6 g/L). Leystu sykurinn upp í sjóðheitu vatni og blandaðu við bjórinn áður en tappað er.
  • Fleyttu bjórnum varlega af botnfallinu svo sem minnst sull komist í flöskurnar.
  • Geymdu flöskur við stofuhita í 7–10 daga og kældu síðan fyrir bragðprófun.
Áfengismagn

Notaðu sykurflotvog til að mæla OG (Original Gravity) og FG (Final Gravity).

  • Dæmi: OG 1.052 og FG 1.013 gefur ~5.1% ABV.
  • Formúla: ABV = (OG - FG) × 1.05 ÷ FG ÷ 0.79.

Reiknivél fyrir áfengismagn

Næstu skref

Þegar þú kannt á byrjendapakkann er næsta skref gjarnan að bæta við kælikerfi og kanna kútakerfi.

Með skipulagningu má brugga á ~3 vikna fresti og nýta “dauðan” tíma til átöppunar.

Algengar spurningar

Algeng vandamál og lausnir fyrir nýja bruggara.

Það lítur ekki út eins og bjór – er ég búin(n) að skemma allt?

Nei. Bjórinn er gruggugur á flestum stigum. Gefðu honum tíma, smakkaðu eftir 1, 2 og 3 vikur á flöskum og mundu að heimabrugg verður ekki alltaf alveg tært. Mikilvægt er að gefa bjórnum tækifæri áður en hann er afskrifaður.

Hvernig fæ ég bjórinn tærari?

Notaðu fjörugrös (Irish Moss) eða Whirfloc síðustu 5–10 mínúturnar í suðu. Kæling með spírali hjálpar líka mikið.

Hvernig losna ég við botnfall í flöskum?

Botnfall er óhjákvæmilegt þegar kolsýrt er með sykri. Helltu varlega í glas og skildu síðasta sopann eftir. Til að sleppa við botnfall þarf kútakerfi og flöskufyllingu úr kúti.

Hverju ætti ég að bæta við búnaðinn næst?

Kælispírall er vinsæl viðbót – hann flýtir ferlinu, minnkar beiskju og gefur tærari bjór. Með honum er hægt að klára bruggið á einum degi.

Orðaforði
Mesking (mashing)
Malt liggur í vatni við 63–69°C til að umbreyta sterkju í gerjanlegan sykur.
Virtur (wort)
Ógerjaður sykurlögur sem myndast í meskingu og er grunnur bjórsins.
PG (Pre-boil Gravity)
Eðlisþyngd virtar fyrir suðu.
OG (Original Gravity)
Eðlisþyngd virtar eftir suðu - fyrir gerjun.
FG (Final Gravity)
Eðlisþyngd þegar gerjun er lokið.
ABV (Alcohol by Volume)
Áfengismagn eftir rúmmáli.
Eðlisþyngd
Mælikvarði á uppleysta sykrur – hærri tala gefur til kynna meiri sykur og hærra mögulegt áfengismagn.
Höfundaréttur

Skjalið er skrifað af Hrafnkeli Frey Magnússyni fyrir Brew.is. Það er óheimilt að endurselja, breyta eða dreifa því utan Brew.is. Þú mátt ekki taka textann, breyta honum og halda því fram að þú hafir samið hann.