Brew.is
Uppskrift - Kryddaður vetrarbjór

Uppskrift - Kryddaður vetrarbjór

ID: 595
Vörulysing

Þessi uppskrift hefur verið vinsæl hjá mér í gegnum árin fyrir hátíðarnar. Hér er á ferðinni sterkur, yljandi vetrarbjór sem er tilvalið að skella í með góðum fyrirvara fyrir jólin.

OG: ~1.085

ABV: 9.3%

Korn / Gerjanlegt

  • 5 kg Pilsner
  • 3 kg Munich I
  • 300 gr Special W
  • 100 gr Black
Humlar
  • 25 gr Nugget eða Magnum í 60 mínútur
Krydd
  • 1/4 tsk kanill í 1 mín
  • 1/2 tsk engifer í 1 mín
  • 1/8 tsk múskat í 1 mín
  • 1/8 tsk allspice í 1 mín

Ger:

  • 2 pakkar US-05

Ath að kryddið fylgir ekki með en er hægt að fá í næstu matvöruverslun.

Fyrir brewzilla, grainfather og fleiri svipaðar græjur er þetta of mikið af korni til að brugga í einni meskingu eins og maður gerir venjulega. En það er auðvelt að komast í kringum það með því að tvímeskja, sem er gert svona:

Meskja helming af korni í 20 lítrum af vatni, sleppa mashout hitastigi en skola þannig að það séu 20 lítrar eftir af virti í pottinum.

Svo tæma kornkörfuna og skella restinni af korninu í græjuna og meskja eins og venjulega í virtinum frá fyrri meskingu. Klára svo meskingu með mashout og skolun eins og venjulega og sjóða svo.

Þetta bætir ca klst við bruggdaginn en er annars ekkert mál - Klárlega málið fyrir allar uppskriftir sem eru yfir 8kg. Og ekkert mál að fara í jafnvel 10kg uppskriftir og uppúr.

Oft keypt með þessari vöru

Bjórtappar - Margir litir
7kr
Bee Cave ljósöl (APA)
3.900kr
Hafra Porter
5.100kr
Vatnslás - 3ja hluta
490kr