Brew.is
Brew.is er eina verslunin á landinu sem sérhæfir sig í öllum vörum tengdum bjórgerð frá grunni. Við eigum einnig ýmislegt fyrir Kombucha, seltzer, mjöð, síder, ostagerð og fleira.
Sumaropnun 2025: Lokað 13. og 20. júní (föstudagar), 11. til 18. (vika) júlí. Getur verið að ég bæti við fleiri dögum með stuttum fyrirvara.
Malt, humlar, ger, pottar, fötur, hreinsiefni, tæki, tappar, dælur, kútar og margt fleira. Í versluninni leynist ýmislegt sem er ekki á síðunni, þannig að ef þig vantar eitthvað bruggtengt þá hafðu endilega samband! Ef það er ekki til þá er hægt að redda því.
Opið 13:00-18:00 þriðjudaga til föstudaga. Lokað á rauðum dögum.
Verslun Brew.is er í Askalind 3, 201 Kópavogi. Síminn er 768 7770. Allar fréttir og auka opnunartímar eru auglýstir á facebook síðu brew.is.
Fyrir byrjendur er tilvalið að skoða þetta skjal. Byrjendapakkinn er tilvalin leið til að byrja á bjórbruggun.
Viltu fá sérsmíðaða uppskrift? Endilega notaðu uppskriftavélina til að panta með góðum fyrirvara.