
Zombie dust
ID: 188
Vörulysing
Frábært, ríflega humlað Amerískt ljósöl sem er þó meira í IPA stíl. Eftirherma (klón) af einum hæst rate-aða APA í heimi. Mjög ferskur og hoppy og rennur ótrúlega vel niður í breiðan hóp fólks. Appelsínugulur á litinn og skemmtilegur maltkarakter sem fylgir humlunum.
Ég hef bruggað þennan fyrir brúðkaup vina og honum hefur alltaf verið mjög vel tekið.
Stats
- OG 1,067 (Miðað við 70% nýtni)
- Beiskja 65 IBU
- Litur 9,2 SRM
- Áfengismagn 6,6 - 7%
Korn / Gerjanlegt
- 4,85kg Pale Ale
- 0,46kg Munich I
- 0,20kg CaraPils
- 0,20kg Caramunich II
- 0,20kg Melanoidin
- 0,20kg Acidulated
Humlar
- 18gr Citra First Wort (fer í fyrir suðu, eftir meskingu)
- 30gr Citra 15mín
- 30gr Citra 10mín
- 30gr Citra 5mín
- 30gr Citra 1mín
- 80gr Citra Þurrhumlun (7 dögum fyrir átöppun)
Ger
- Fermentis S04 ger. Einnig skemmtilegur með til dæmis Verdant eða Pomona
Það er gott að gerja þennan aðeins undir 20°C ef þú hefur tök á. Whirfloc, dehaze eða fjörugrös eru líka heppileg til að hafa hann tærari.


